Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
- Lionsþing 2025
Í samræmi við starfsreglur og lög Fjölumdæmis 109 vill Fjölumdæmisstjórn koma eftirfarandi á framfæri til allra Lionsfélaga
Fjölumdæmis og umdæmisþing þau 70. verða haldin í Ólafsvík dagana 25. og 26. apríl 2025.
Framboð til embætta og tillögur skal taka fyrir á fjölumdæmis og umdæmisþingum 2025.
Frestur til að skila inn tillögum um breytingar á lögum og um mál sem leggja á fyrir þingin er samkvæmt lögum Fjölumdæmis 109.
1) Mál og/eða tillögur sem klúbbur og/eða klúbbar óska eftir að séu rædd á umdæmisþingi/þingi fjölumdæmis skulu póstleggjast umdæmisstjóra/fjölumdæmisstjóra eigi síðar en 45 dögum fyrir umdæmisþing / þing fjölumdæmis. (Síðasti skiladagur fyrir 70. Lionsþing er því 12. mars 2025).
2) Tillögur um framboð til embætta umdæmisstjóra, fyrsta og annars vara umdæmisstjóra fyrir starfsárið 2025 – 2026 skal senda kjörnefndum fyrir 15. febrúar 2025. Kjörgengi til embættis umdæmisstjóra hefur fyrsti varaumdæmisstjóri, kjörgengi til embættis fyrsta varaumdæmisstjóra hefur annar varaumdæmisstjóri.
Um kjörgengi til embættis annars varaumdæmisstjóra segir í alþjóðalögum Lions:
Til þess að Lionsfélagi sé talinn kjörgengur og hæfur til að vera valinn til að gegna embætti annars varaumdæmisstjóra skal hann/hún:
1) Vera virkur fullgildur og skuldlaus félagi í fullgildum og skuldlausum Lionsklúbbi með stofnskrá í umdæminu.
2) Hafa tryggt sér stuðnings síns klúbbs eða meirihluta klúbba síns umdæmis.
3) Hafa starfað, eða kemur til með að hafa starfað, þegar hann/hún tekur við embætti annars varaumdæmisstjóra:
a) Sem formaður Lionsklúbbs fullt kjörtímabil eða meirihluta þess og hafa verið í stjórn Lionsklúbbs ekki minna en tvö (2) ár til viðbótar; og
b) Sem svæðisstjóri, (region chairperson), GET útbreiðslufulltrúi, GLT fræðslufulltrúi, GMT félagafulltrúi, GST verkefnafulltrúi, LCIF- fulltrúi, eða umdæmisritari/gjaldkeri, fullt kjörtímabil eða meirihluta þess.
c) Hafa ekki gegnt neinum ofangreindum embættum samtímis.
4) Hafa ekki áður verið umdæmisstjóri í fullt kjörtímabil eða meiri hluta þess.
3) Tillögur um framboð til embættis fjölumdæmisstjóra fyrir starfsárið 2025 – 2026, til embættis vara fjölumdæmisstjóra fyrir starfsárið 2025 – 2026 skal senda fjölumdæmisritara fyrir 15. febrúar 2025. Þeir einir eru kjörgengir til embættis fjölumdæmisstjóra sem hafa gegnt embætti vara fjölumdæmisstjóra og til embættis vara fjölumdæmisstjóra sem gengt hafa embætti umdæmisstjóra.
4) Á þingum umdæma og fjölumdæmis í Ólafsvík verður:
a) Kosið í embætti umdæmisstjóra 109 A og 109 B starfsárið 2025 – 2026.
b) Kosið í embætti fyrsta og annars varaumdæmisstjóra 109 A og 109 B starfsárið 2025 – 2026.
c) Kosið í embætti fjölumdæmisstjóra starfsárið 2025 – 2026.
d) Kosið í embætti vara fjölumdæmisstjóra starfsárið 2025 – 2026.
Einnig þarf að kjósa eða skipa í eftirtalin embætti fjölumdæmisráðs með framboðsfresti til 15. febrúar 2024:
e) GET stjóri til eins árs 2025 – 2026.
f) GLT stjóri til eins árs 2025 – 2026.
g) GMT stjóri til eins árs 2025 – 2026.
h) GST stjóri til eins árs 2025 – 2026.
i) Umhverfisstjóri til eins árs 2025 – 2026.
j) Heiðurssjóður Guðrúnar Bjartar, formaður til þriggja ára 2025 - 2028.
k) Kjaransorðunefnd, formaður til þriggja ára 2025 - 2028.
Embætti sem þarf að kjósa um á þingi fjölumdæmis en falla ekki undir framboðsfrest:
l) Fjölumdæmisritari til eins árs, 2025 – 2026.
m) Fjölumdæmisgjaldkeri til eins árs, 2025 – 2026.
n) Tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara til eins árs, 2025 – 2026.
o) Aðrir þeir embættismenn sem ráðið telur nauðsynlega og skulu kosnir árlega.
Embætti í liðum 4e – 4o eru án skilyrða og opin öllum áhugasömum Lionsfélögum.
Kópavogur 5. desember 2024
Geirþrúður F. Bogadóttir Fjölumdæmisstjóri 109 2024 – 2025
Inga Lóa Steinarsdóttir Umdæmisstjóri 109 A 2024 – 2025
Sumarliði Ásgeirsson Umdæmisstjóri 109 B 2024 - 2025
frekari upplýsingar koma fljótlega