Verðupplýsingar

70. þing Lionsumdæmis 109  verður haldið í Ólafsvík 25. og 26. apríl 2025

Lækkun þinggjalds og þingfararstyrkur: 

Á undanförnum árum hefur fjárhagsleg aðkoma Fjölumdæmisins verið að aukast  sem m.a. hefur leitt til þess að þinggjald hefur lækkað úr kr. 13.500.- í kr. 5.000.- og ferðastyrkur hækkað kr. 25.000.- (var áður kr. 20.000.-) fyrir hvern þingfulltrúa sem býr í meira en 150 km. fjarlægð frá þingstað Fjölumdæmisþings.

Sótt er um styrkinn að  loknu þingi.  Skilyrði styrkveitinga er að þingfulltrúi hafi setið allt þingið. 

Í  tilefni af 70. afmælisþingi  Lionsumdæmis 109 mun Fjölumdæmið auka enn frekar fjárhagslega aðkomu  sína að þinginu.  Markmið breytinganna er að fá fleiri til að mæta, taka virkan þátt í störfum þingsins og þeim viðburðum sem eru í boði fyrir þingfulltrúa og maka þeirra.   Þannig geta Lionsfélagar haft áhrif og tekið þátt í því að móta starf hreyfingarinnar til framtíðar.

GJALDSKRÁ  fyrir Lionsþing 2025:

Þinggjald                                       kr. 5.000.-

Hádegismatur föstudag             kr. 3.500.-

Síðdegiskaffi föstudag               kr. 1.500.-

Kynningarkvöld föstudag           kr. 4.000.-

Hádegisverður laugardag          kr. 3.500.-

Síðdegiskaffi laugardag             kr. 1.500.-

Lionshátíð laugardagskvöld      kr. 7.000.- ( var kr. 13.500 )

Vakin er athygli á því að  Kynningarkvöldið og Lionshátíðin eru opin öllum Lionsfélögum og mökum þeirra. Lionshátíðin verður haldin í Klifi sem  er eitt glæsilegasta félagsheimili landsins. Boðið verður upp á hátíðarkvöldverð og dansleik.

Skrá sig þarf sérstaklega á alla viðburði á heimasíðu Lions, www.lions.is.

Lionsfélagar eru minntir á að taka með sér stóra klúbbfána og stangir fyrir skrúðgönguna. Einnig borðfána klúbbsins, ef þeir eru til.

Kæru Lionsfélagar, við hvetjum  Lionsklúbba til þess að taka þátt og senda fulltrúa á þingið í Ólafsvík. Þar gefst tækifæri til að hitta aðra Lionsfélaga, spjalla og treysta vinabönd.

Stefán Árnason,  fjölumdæmisgjaldkeri

Hörður Sigurjónsson, þing- og protocolstjóri