Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Íva Marín Adrichem, sem er 12 ára nemandi í Hof- staðaskóla í Garðabæ, sigraði í ritgerðarsamkeppni Lions um frið. Keppnin er alþjóðleg og er ætlað blindum og sjónskertum ungmennum á aldrinum 11-13 ára. Markmiðið með keppninni er að hvetja ungmenni til að hugsa um frið, sjá heiminn í stærra samhengi og að leggja sitt af mörkum í friðarumræðunni.
Þema keppninnar er Kraftur friðarins
Frá vinstri Kristinn Hannesson fjölumdæmisstjóri, Sandra Sif Gunnarsdóttir,
Ólafur Einar Ólafsson, Íva Marín Adrichem ásamt Guðrúnu Björt Yngvadóttir
alþjóðastjórnarmanni sem afhenti verðlaunin fyrir hönd Lions.
Við verðlaunaafhendingu í Lionsheimilinu í Reykjavík voru tvö önnur börn einnig heiðruð og þeim þakkað fyrir þeirra ritgerðir, en það eru þau Ólafur Einar Ólafsson og Sandra Sif Gunnarsdóttir
Alþjóðasamband Lionsklúbba stendur fyrir keppninni um allan heim, í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar UNESCO, sem þáttur í friðaruppeldi barna og unglinga. Íslenska vinningsritgerðin hennar Ívu Marínar hefur verið þýdda á ensku og send í alþjóðlegu keppnina, en úrslit hennar verða kynnt í lok júní. Lionshreyfingin starfar í 206 þjóðlöndum, með 1,4 milljónir félagsmanna. Ísland er einn hlekkur í þessari stóru keðju með 2.400 Lionsfélaga í 90 klúbbum um allt land.
Samkeppni um gerð friðar-veggspjalds hefur verið haldin árlega í rúm 20 ár. 1113 ára ungmennum er gefinn kostur á að tjá sig í myndlist og túlka sínar hugmyndir um frið, friðarboðskap og framtíðarsýn, í litum, línum og formum. Um fjórar milljónir ungmenna í yfir 100 löndum hafa tekið þátt í þessari samkeppni Lions. Nú er blindum og sjónskertum ungmennum gefið tækifæri til að taka þátt í friðarumræðunni með ritgerð.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Björt Yngvadóttir
sími 896 7097, netfang gudrun@hraunfolk.net