Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Svipmyndir frá fjölumdæmisfundi. Ljósm. Halldór Kristjánsson
Fjölumdæmisráðsfundur var haldinn 2. mars síðastliðinn. Sú nýbreytni var í vinnslu fundarins að fjölumdæmisstjóri kallaði eftir skýrslum frá fulltrúum í fjölumdæmisráði fyrir fundinn, en síðan voru þær ræddar. Þetta gaf ágæta raun þannig að mest var rætt um atriði sem skipta mestu máli og um hin gátu menn lesið sér til upplýsingar.
Á fundinn mættu sem sérstakir gestir stjórnarmenn í Hollvinum Grensásdeildar formaður Gunnar Finnsson og ritari Ottó S Schopka Lkl Fjölni, en sem kunnugt er þá stendur Lions fyrir söfnun til Grensásdeildar á þessu starfsári. Klúbbar sem vilja styrka Grensásdeild geta greitt inn á reikning íslenska hjálparsjóðsins. Nánari upplýsingar veitir Lionsskrifstofan.
Frá vinstri Ottó S Schopka, Kristinn G. Kristjánsson og Gunnar Finnsson
Fundargerð er komin á félagavefinn sjá sem 3. fundargerð 2012 -2013
http://lions.is/index.php/skyrslur/fundargerdir/category/fjoelumdaemi-109
Sjá einnig umfjöllun um Kjaransorðuna í pistli Kristins G. Kristjánssonar sjá >>>>>>