Ævifélagi Lkl. Akraness

Lions_GunnarÁ fundi Lionsklúbbs Akraness þann 20. mars  s.l. var Gunnar Elíasson gerður að ævifélaga klúbbsins.    Gunnar gekk til liðs við Lionsklúbb Akraness 11. nóvember 1958.  Hann hefur allt frá inngöngu í klúbbinn verið öflugur og starfssamur félagi.  Tvisvar sinnum hefur hann verið meðstjórnandi, ritari  var hann stafsárið 1979-1980 og formaður 1980-1981.  Hann var svæðisstjóri starfsárið 1981-1982, Lionessufulltrúi í umdæmi 109B 1986-1987.  Auk þessa hefur Gunnar verið formaður í fjölda nefnda og nefndarmaður.  Hann var útnefndur Melvin Jones félagi af klúbbnum 30. apríl 1991.