Alþjóðastjórn

Skrúðganga þjóðanna

Alþjóðaþing - 
International Convention

Alþjóðaþingið er æðsta stofnun Lionshreyfingarinnar. Árlega er haldið Alþjóðaþing Lions og  þar hittast um 20.000 Lionsfélagar í eina viku. Þingin eru haldin á sumrin, um mánaðarmót júní og júlí. Næstu þing verða 4.-8. júlí 2014 í Toronto, Kanada.  26.-30; júní 2015 á Honolulu, Hawaii. 24.-28. júní 2016 í  Fukuoka, Japan. 30. júní – 4. júlí 2017 í Chicago, Bandaríkjunum.  29 júní – 3. júlí 2018 í Las Vegas, Nevada, Bandaríkjunum.

Þingið í Chicago 2017 eru 100. þingið,
en þá verður  aldarafmæli Lions fagnað. Fyrsta alþjóðaþingið var haldið 1917,  aðeins einu sinni hefur þing fallið niður, en það var 1945.
Þingið í Hamborg 2013 er 96. alþjóðaþing í sögu Lions, en aðeins tvisvar sinni áður hefur alþjóðaþing verið haldið í Evrópu. Það var 45. þingið haldið í Nice, Frakklandi 1962 og 81. þingið í Birmingham, Englandi 1998.

Alþjóðaforseti

Barry J. Palmer

Barry J. Palmer frá Berowra í Ástralíu var kjörinn alþjóðaforseti Lions á 96. alþjóðaþingi Lions í Hamborg 5. – 9. júlí 2013. Hann hafði áður starfað sem forstjóri fasteignafyrirtækis.

Palmer gekk í Lkl. Hornsby 1976 og hefur meðal annars gengt embætti formanns, svæðisstjóra, umdæmisritara, umdæmisgjaldkera og umdæmisstjóra. Hann hefur einnig setið í fjölmörgum nefndum 
fyrir Lions og var formaður þingnefndar fyrir alþjóðaþingið í Sydney í Ástralíu 2010. 

Palmer hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín í Lions
. 100% formaður, 100% umdæmisstjóri, 6 viðurkenningar alþjóðaforseta og æðstu viðurkenningu hreyfingarinnar, Ambassador of Good Will. Plamer er Progressive Melvin Jones Félagi. Palmer hefur einnig fengið viðurkenningu frá áströlskum stjórnvöldum fyrir störf að mannúðarmálum, viðurkenningu frá rannsóknastofnun Ástralíu fyrir krabbamein í börnum og frá samtökum spastískra í Ástralíu.
Hann var brautryðjandi í sjálfboðaliðastarfi fyrir ólympíuleikana í Sydney og sat í undirbúningsnefnd fyrir ólympíuleika fatlaðra. Palmer og eiginkona hans Anne sem einnig er Lionsfélagi og Melvin Jones félagi eiga 3 börn og 8 barnabörn.

Kjörorð alþjóðaforseta eru „Follow Your Dream“

gudrun_yngvadottirAlþjóðastjórn
Á alþjóðaþingi er kosin stjórn til að fara með vald alþjóðasambandsins milli þinga. Alþjóðastjórn Lions skipa 44 einstaklingar, þ.e. alþjóðaforseti, fyrsti og annar varaforseti, fráfarandi alþjóðaforseti og 34 kjörnir alþjóðastjórnarmenn „International Directors“ (þar af 6 frá Evrópu), en auk þess skipar alþjóðaforseti 6 menn í alþjóðastjórn „Board Appointee“. Alþjóðastjórnarmenn eru kjörnir til tveggja ára en aðrir til eins árs. Ákveðinn fjöldi alþjóðastjórnarmanna er frá hverju hinna sjö skipulagssvæða (heimsálfa).  Þannig er  tryggt, að hver klúbbfélagi geti látið rödd sína heyrast, í gengum sinn umdæmisstjóra, sem getur auðveldlega haft samband við sinn alþjóðastjórnarmann. Á alþjóðaþingi 2010 í Sydney Ástralíu var Guðrún Björt Yngvadóttir í Lionsklúbbnum Eik, Garðabæ kjörin í alþjóðastjórn Lions. Hún var fyrsta konan í Evrópu sem er kjörin í alþjóðastjórn Lions.  Auk þess var Guðrún skipuð í  alþjóðastjórn 2012-2013 sem „Board Appointee“. Auk Guðrúnar hafa fjórir Íslendingar gegnt stöðu alþjóðastjórnarmanns, en þeir eru Þorvaldur Þorsteinsson, Björn Guðmundsson, Svavar Gests og Jón Bjarni Þorsteinsson.

Fundir alþjóðastjórnar
Alþjóðastjórn heldur fjóra staðbundna fundi á ári, en þess á milli eru haldnir símafundir og veffundir nefnda og vinnuhópa. Stjórnin mótar stefnu og stýrir þróun og heldur utan um alla starfsemi LCI. Stjórnin gerir fjárhagsáætlun allra deilda alþjóðaskrifstofu og hefur eftirlit með eignum og sjóðum alþjóðasamtakanna.  Alþjóðastjórnarmenn skiptast í 12 nefndir.

Hlutverk alþjóðastjórnarmanns  –  International Director (ID)
Alþjóðastjórnarmaður er fulltrúi síns svæðis/álfu á alþjóðlegum vettvangi og tengiliður milli Lionsfélaganna og Alþjóðasambandsins. Engu að síður er hann fulltrúi allra 207 Lionslandanna og má aðeins gera það sem er best fyrir alla Lionshreyfinguna. Til að uppfylla þessar skyldur þarf hann að heimsækja sem flest lönd og umdæmi á sínu svæði, kynnast starfseminni og taka reynsluna inn í alþjóðastjórnina. Hann á einnig að kynna stefnu og nýjungar frá alþjóðasamtökunum, veita upplýsingar og fræðslu, aðstoða við að leysa vandamál og að ná markmiðum.

Hlutverk skipaðs stjórnarmanns  –  Board Appointee (BA)Board Appointee situr fundi alþjóðastjórnar, á sömu forsendum og ID og starfar í einni af nefndum alþjóðastjórnar. Auk þess er hann í ráðgjafanefnd forsetans og situr sérstaka fundi með forsetanum.Forsetinn velur BA úr hópi þeirra sem hann þekkir vel og treystir best til að fylgja sínum málum eftir og vera sér til ráðgjafar. Þeir koma flestir úr röðum fyrrverandi forseta og/eða úr stuðningsmannaliði hans (kosningarstjóri o.fl.). Þess vegna kemur á óvart þegar einhver utanaðkomandi verður „ein af þeim útvöldu“; en þetta er mikill heiður og mikil ábyrgð. BA eru „augu og eyru“ forsetans, láta hann vita um gang mála og gæta þess að hans áherslum sé fylgt.  BA er boðberi forsetans, gefur nefnd sinni og öðrum upplýsingar og réttu „línuna“ og situr sértaka fundi ráðgjafanefndar með forsetanum, þar sem staðan er tekin og stefnan mörkuð.

Hlutverk fyrrverandi alþjóðastjórnarmanns PID
Fyrrverandi alþjóðastjórnarmaður hefur skilgreint hlutverk, bæði heima og á alþjóðavísu. Hann hefur sama hlutverk og áður varðandi umdæmisheimsóknir í Evrópu og hefur til þess ferðaheimild (ákveðin fjárráð). Heima er hann tengiliður alþjóðastjórnar, -forseta og -skrifstofu við umdæmi og fjölumdæmi. Hann skal miðla upplýsingum  og fær afrit af póstum, sem sendir eru til embættismanna. PID fær viðurkenningarskjöl og forsetamerki til að veita Lionsfélögum (skv. eigin vali). Alþjóðaskrifstofa hefur samband við hann, vegna  vals á þeim sem skulu hljóta leiðtoga-  eða forsetaorðu, sem er gert í samvinnu embættismanna; einnig við að skipuleggja heimsóknir alþjóðaforseta.  Auk þess hefur ID umboð til ákvörðunar í óleystum málum, þ.e. ef embættismenn eða skrifstofa svara ekki erindum fyrir ákveðinn tíma, þá er haft samband við PID og hann á að afgreiða málið strax.