Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Árið 2012. Er mikið afmælis ár í Lionsklúbbi Húsavíkur, merkisafmæli hjá mögum félögum og hófst þessi törn 1. jan þegar Tryggvi Finnson varð 70. ára, Haukur Logason 75.ára , Guðmundur Guðjónsson 60. ára. Ásmundur Bjarna 85. ára, Tryggvi Óskars 70. ára Árni Vill 75. ára. svo bara heldur þetta áfram út árið.
Á fundi 1. mars afhenti Lionsklúbburinn Björgunarsveitinni Garðari gjafabréf kr. 300,000,- sem styrk til kaupa á björgunarbát. Við styrknum tók Sigrún Þórólfsdóttir
Sigrún þakkar. |
Á fundi Lionsklúbbs Húsavíkur 15. mars var Ásmundur Bjarnason gerður að Melvin Jones félaga. Ásmundur er einn af tryggu meðlimum klúbbsins og aldursforseti 85 ára, mætir vel og ómissandi á klúbbfundi, Ádi er mikill sögumaður, hefur húmorinn í lagi og er uppi með munnhörpuna ef sungið er.
Formaður afhendir Ásmundi Melvin Jones |
Karlinn þræl klár í kollinum |
Ádi hikar ekki við sem ljónatemjari að áminna og jafnvel að kæra, og svo ekki síst að reka menn úr og í skó eftir því sem við á. Eitt sinn kom Umdæmisstjóri sem er kona og sýslumaður í heimsókn og fór úr skónum, þetta fór illa í Ásmund , hann þorði ekki að kæra frúna enda var hún sýslumaður. Ásmundur var settur af sem ljónatemjari í fyrra, því yngja átti upp í því embætti, Ásmundur setti þá ofaní við formann og sagði að þetta þætti sér skrítið, því Villi sem taka átti við því embætti er 1-2 árum yngri, og yrði fljótur að ná sér í aldri, þetta sá formaður og skipaði Áda aftur ljónatemjara, og allt féll í ljúfa lög.
Ádi lætur Tryggva heyra það |
|
Guðmundur Guðjónsson og Tryggvi Óskarsson áttu merkisafmæli. Guðmundur 60 ára. Og Tryggvi 70 ára. við það tækifæri, tilkynnti Tryggvi að hann ætlaði ekki að halda okkur veislu en ætlaði að gefa klúbbnum kr.1000,- fyrir hvert ár sem hann hafði lifað, magnaður bóndi og góður Lionsfélagi hann Tryggvi.