Auglýst eftir framboðum í embætti næsta árs

Framboð til embætta og tillögur sem taka skal fyrir á
Fjölumdæmis- og umdæmisþingum 2013

Fjölumdæmis- og umdæmisþing verða haldin á Akureyri dagana 10. og 11. maí 2013.

Í samræmi við starfsreglur og lög Fjölumdæmis 109 vill Fjölumdæmisstjórn koma eftirfarandi á framfæri til allra Lionsfélaga:

Frestur til að skila inn tillögum um breytingar á lögum og um mál sem leggja á fyrir þingin er samkvæmt 27. gr. laga fjölumdæmis 109 og í þeirri grein segir:

  1. Mál og/eða tillögur sem klúbbur og/eða klúbbar óska að séu rædd á umdæmisþingi/ Fjölumdæmis-þingi, skulu póstleggjast til umdæmisstjóra/Fjölumdæmisstjóra eigi síðar en 45 dögum fyrir umdæmis- / fjölumdæmisþing.
  2. Síðasti skiladagur fyrir 58. Lionsþing á Akureyri er því eigi síðar en 24. mars 2013. Fjölumdæmisráð/umdæmisstjórnir fjalla um slíkar tillögur og gefa þeim álit.
  3. Tillögur um framboð til embætta umdæmisstjóra, fyrsta og annars varaumdæmisstjóra fyrir starfsárið 2013 - 2014 skal senda kjörnefndum fyrir 15. febrúar 2013.
    Kjörgengi til embættis umdæmisstjóra hefur fyrsti varaumdæmisstjóri, kjörgengi til embættis fyrsta varaumdæmisstjóra hefur annar varaumdæmisstjóri.Um kjörgengi til embættis annars varaumdæmisstjóra segir í 36. grein laga Lionsumdæmis 109:
    Sá einstaklingur skal vera:
    1. starfandi Lionsfélagi og hafa staðið í skilum við klúbb sinn, enda sé klúbburinn einnig skuldlaus við Alþjóðasambandið og fjölumdæmi 109.
    2. hafi tryggt sér stuðning síns klúbbs eða meiri hluta klúbba síns umdæmis.
    3. hafi lokið eða sé að ljúka embætti sem formaður Lionsklúbbs og hafa setið í stjórn Lionsklúbbs í a.m.k. tvö önnur ár.
    4. hafi lokið eða sé að ljúka embætti svæðisstjóra, gjaldkera eða ritara í umdæmisstjórn.

    Ekki má gegna ofangreindum embættum í 3 og 4 lið samtímis, nema að til komi undanþága frá Alþjóðastjórn.

  4. Tillögur um framboð til embættis Fjölumdæmisstjóra fyrir starfsárið 2013-2014 og embættis varafjölumdæmisstjóra  fyrir starfsárið 2013 - 2014 skal senda Fjölumdæmisritara fyrir 15. febrúar 2013. Þeir einir eru kjörgengir til embættis Fjölumdæmisstjóra sem hafa gegnt embætti vara fjölumdæmisstjóra og til embættis varafjölumdæmisstjóra sem hafa gegnt embætti umdæmisstjóra.
  5. Á Umdæmis- og fjölumdæmisþingum á Akureyri verður:
    1. kosið í embætti Umdæmisstjóra 109a og 109b starfsárið 2013 - 2014.
    2. kosið í embætti fyrsta og annars varaumdæmisstjóra 109a og 109b starfsárið 2013 - 2014.
    3. kosið í embætti Fjölumdæmisstjóra starfsárið 2013 - 2014.
    4. kosið í embætti varafjölumdæmisstjóra starfsárið 2013 - 2014.

Einnig þarf að kjósa með framboðsfresti til 15. febrúar í eftirtalin embætti fjölumdæmisráðs:

Stjórnarformann Hjálparsjóðs Lionsfjölumdæmis 109 til þriggja ára 2013 – 2016.

Embætti sem þarf að kjósa um á fjölumdæmisþingi en ekki senda inn tillögur um eru:

Fjölumdæmisritara til eins árs, fjölumdæmisgjaldkera til eins árs og tveggja endurskoðenda til eins árs og tveggja til vara og er opið öllum Lionsfélögum.

Hveragerði 2. desember 2012

Kristinn G. Kristjánsson
Fjölumdæmisstjori