Blóðsykurmælingar Lionsklúbbanna í Hveragerði 13. og 14. nóvember

  DSC_2001 vk Fréttatilkynning. Gengur þú með dulda sykursýki ? Sykursýki er hættulegur sjúkdómur. Lionsklúbbur Hveragerðis og Lionsklúbburinn Eden mæla blóðsykur gesta í Sunnumörk í Hveragerði um næstu helgi, dagana 13. og 14. nóvember. Lkl. Eden mælir milli 17.00 – 19.00 á föstudaginn 13. og Lkl. Hveragerðis á laugardaginn 14. milli 10.00-11.00 og 14.00-16.00. Styrktaraðilar mælinganna eru Heilsugæslan í Hveragerði, Dvalarheimilið Ás og Heilsuhæli NLFÍ. Er þetta fólki að kostnaðarlausu. Hér má lesa nánar um ofangreint í Dagskránni.