Blóðsykursmælingar fóru fram hjá Lionsklúbbi Hveragerðis og Lionsklúbbnum Eden í samstarfi við Hjúkrunarheimilið Ás og Heilsugæsluna í Hveragerði dagana 14. og 15. nóvember í Sunnumörk.
Mældir voru 430 einstaklingar og af þeim var einn sendur akút á sjúkrahús en 4 aðrir í frekara tékk við fyrsta tækifæri. Mælt var í um 3 klst hvorn dag.