Frá Stykkishólmi

Árangursrík samvinna félagasamtaka og fyrirtækja í Stykkishólmi

Lionsklúbbur Stykkishólms og Lionsklúbburinn Harpa, ásamt Rauða krossinum, Kvenfélaginu Hringnum og nokkrum fyrirtækjum í bænum, afhentu rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnunar Vesturlands á St. Franciskusspítala í Stykkishólmi blóðrannsóknartæki.  Rannsóknarstofa St.Franciskusspítalans á sér langa og farsæla sögu og hefur alla tíð búið við góðan tækjakost.