Frábærir ljósmyndarar 2012

Íslenska ljósmyndin kemst alltaf í almanakið sem Alþjóðasamband Lions gefur út árlega til styrktar LCIF – Alþjóðahjálparsjóði Lions.

Í almanakinu eru bestu myndirnar úr alþjóðlegu ljósmyndakeppni Lions “Myndir úr náttúrunni”. Mánuðir ársins, vikudagarnir og Lionsviðburðir eru skráðir á 11 tungumálum. Íslenska myndin Smölun í Dölum prýðir marsmánuð, en hún er eftir Björn A. Einarsson, Lkl. Búðardals. Við óskum Birni og félögum í Lionsklúbbi Búðardals hjartanlega til hamingju.

Almanak

1500 kr. fyrir flott almanak – Glæsilega gjöf!

Lionsfélagar eru hvattir til að kaupa almanakið og styrkja LCIF. Lionsklúbbar geta gefið gestum og

velunnurum sínum almanakið (t.d í staðinn fyrir klúbbfána). Í því felst góð kynning á Lions og stuðningur við alþjóðlegt hjálparstarf Lions. Við erum stolt af því að íslensk mynd prýðir almanakið fjórða árið í röð og við þökkum Birni kærlega fyrir framlagið til LCIF.

1500 kr. fyrir flott almanak – Glæsilega gjöf!