Frétt frá Lionsklúbbi Grundarfjarðar

Lionsklúbbur Grundarfjarðar verður 40 ára á starfsárinu nánar tiltekið 28. janúar 2012 en þá verða liðin 40 ár frá stofnfundi klúbbsins.  Af þessu tilefni verður ýmislegt um að vera hjá klúbbnum tengt þessum tímamótum. Fyrsti viðburðurinn var 25. nóvember sl. en þá var öllum börnum í leikskólanum Sólvöllum  og Grunnskóla Grundarfjarðar  afhent Jóladagatal Lions að gjöf við góðar undirtektir viðtakenda og að sjálfsögðu fylgdi tannkremstúpa með ásamt límmiða með stimpli Lionsklúbbsins.

Næsta verkefni verður síðan sjálf afmælishátíðin sem haldin verður í sal Fjölbrautarskóla Snæfellinga laugardaginn 28. janúar nk.

Grundarfj_2P7J8344_s

Unnur Birna Þórhallsdóttir formaður og Anna María Reynisdóttir með leikskólabörn

Grundarfj_2P7J8414_s

Kampakátir nemendur Grunnskólans með dagatölin sín.

Með lionskveðju

Gunnar Kristjánsson
blaðafulltrúi
Lionsklúbbs Grundarfjarðar.