Fréttir frá Lionsklúbbi Stykkishólms

Lionsþing fjölumdæmis 109 verður haldið í Stykkishólmi dagana 6. og 7. maí næstkomandi. Lionsklúbburinn Harpa og Lionsklúbbur Stykkishólms standa fyrir þinginu.

Lionsfélögum í Stykkishólmi er það sönn ánægja að bjóða ykkur til Lionsþings vorið 2011. Bærinn og nágrannasveitir hans hafa upp á margt að bjóða sem gerir dvöl gesta ánægjulega. Fyrir utan rómaða náttúrufegurð á Snæfellsnesi og við Breiðafjörð þá eru í Stykkishólmi og nágrenni fjölbreyttir möguleikar á afþreyingu og ýmsu forvitnilegu fyrir ferðafólk. Við munum leggja okkur fram um að gera ykkur dvölina sem ánægjulegasta og hlökkum til að taka á móti Lionsfólki af öllu landinu.