Gjöf Lions vegna 60 ára afmælis Lions á Íslandi afhent LSH í viðurvist forseta Ísland

Augnskurðartækið gjöf Lions á Íslandi til Landsspítala Háskólasjúkrahúss var afhent í dag af Kristni Kristjánssyni fjölumdæmisstóra Lions.  Að því loknu gangsetti hr. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands tækið. Prófessor í augnlækningum Einar Stefánsson sagði síðan frá gildi tækisins fyrir þjóðina og nefndi dæmi um lækningar á ungu fólki, þar sem ein aðgerð greiddi í raun upp andvirði tækissins.

Augnlaekningataeki_3
Forseti Íslands Ólafur Ragnar Grímsson hefur hér gangsett tækið undir
dyggri leiðsögn pr. Einars Stefánssonar. Kristinn Kristjánsson fjölum-
dæmisstjóri Lions er þarna með þeim

Tækið er keypt fyrir söfnunarfé Lions á Íslandi að hálfu og jafn hárri upphæð frá aðþjóða hjálparsjóð Lions LCIF. Tengslamaður Lions á Íslandi við LCIF er Guðrún Björt Yngvadóttir sem nú situr í ráðgjafastjórn alþjóðaforseta Lions.

Augnlaekningataeki_b2
Guðrún Björt Yngvadóttir ráðgjafi alþjóðaforseta Lions, Kristinn Kristjánsson
fjölumdæmisstjóri, hr Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands og Björn Zoega
forstjóri LSH. 
RUV
Frétt kom frá viðburðinum í tíufréttum RÚV.  >>>>>>