Góðar gjafir frá Lionsklúbbi Sauðárkróks

Félagar í Lionsklúbbi Sauðárkróks komu færandi hendi á HS sl. miðvikudag, síðasta vetrardag. Þeir gáfu stofnuninni fjóra hjólastóla, tvö sjónvörp, þrjú magnaratæki fyrir heyrnarskerta og iPad sem notaður er við fínar jafnvægisæfingar. 

Þeir gáfu okkur fyrr í vetur beinmergsnálar og afhentu þær formlega við þetta tækifæri. 

Við á HS færum þeim Lion mönnum alúðarþakkir fyrir höfðinglegar gjafir en þeir hafa í gegnum sín fimmtíu ár verið traustur bakhjarl stofnunarinnar.

 

Tekið af vef HS á Sauðárkróki >>>>>>
Saudarkroks4Saudarkroks1Saudarkroks2Saudarkroks3