Guðrún Björt valin í átta manna ráðgjafahóp alþjóðaforseta.

gudrun_yngvadottirSem kunnugt er lauk Guðrún Björt Yngvadóttir Lkl. Eik seinna ári sínu sem alþjóðastjórnarmaður Lions á þinginu í Busan í Suður Kóreu.  Hún hefur  sýnt með starfi sínu og elju að með góðu fordæmi, einlægni, ástríðu og vinnusemi leggur maður inn á sjóð virðingar og vináttu sem er betri nokkru öðru og ekki verður keypt á torgum úti. //kgk//.  Nú vex hróður hennar því hún hefur verið valin sem einn af átta sérstökum ráðgjöfum hins nýja alþjóðaforseta Wayne A Madden frá Bandaríkjunum.  Við óskum henni til hamingu með þennan heiður.  Við Lionsfólk á Íslandi skulum vera stolt yfir að eiga slíkan leiðtoga, sem fulltrúa okkar.