Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Í Lionsklúbbnum Engey hófst vetrarstarfið með ógleymanlegu ferðalagi um Fjallabaksleið nyrðri. Lagt var af stað frá Lionsheimilinu að morgni 10. september í sól og blíðu sem hélst alla ferðina. Landið skartaði sínu fegursta en fjallasýn í fjarlægð var nokkuð í móðu vegna ösku í lofti sem gaf ævintýrablæ. Á leiðinni var stoppað bæði í Landmannalaugum og Hólakoti, nestinu gerð skil, umhverfið skoðað og útiverunnar notið.
{gallery}myfolder/engey{/gallery}
Myndin er tekin í ferð Lionsklúbbsins Engeyjar um Fjallabaksleið nyrðri haustið 2011.
Í ferðalok var snæddur þriggja rétta kvöldverður að Höfðabrekku í Mýrdal en áður höfðum við þegið veitingar í húsi sem félagi okkar, Heiðrún Rútsdóttir, á ásamt systur sinni í Vík í Mýrdal. Á leið til Reykjavíkur var komið við á Þorvaldseyri þar sem við sáum kvikmynd um gosið í Eyjafjallajökli og áhrif þess. Það var komið fram yfir miðnætti þegar þreyttar og glaðar Engeyjarkonur komu í bæinn eftir 17 klukkustunda óbyggðaferð.