Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Bragi Ragnarsson, varaumdæmisstjóri, heimsótti á dögunum Lionsklúbburinn Eðnu á Akranesi sem var stofnaður 19.janúar 1981. Fundurinn var ákaflega skemmtilegur og þar flutti Steinunn Eva Þórðardóttir frá Hér núna ráðgjafarfyrirtæki áhugavert erindi.
Til upplýsingar fyrir áhugasama er Eðna kvennmannsnafn og líklega eitt af keltneskum mannanöfnum fyrri tíðar. Í dag ber a.m.k. ein kona þetta nafn. Nöfnin Kjartan, Kormákur og Njáll eru keltnesk og hafa lifað í íslenskum nafnaforða frá landnámsöld, en meðal endurvakinna nafna eru Brjánn, Kalman, Trostan, Eðna, Kaðlín og Melkorka. Eðna eða Edna heitir ein persóna Tóbíasarbókar. En merking þess er ókunn.