Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Viðstaddir voru afhendingu styrksins frá Lionsklúbbi Akraness. Jón Ágúst Þorsteinsson formaður klúbbsins afhendir hér Steinunni Sigurðardóttir formanni Hollvinasamtaka HVE fjögurra milljóna króna ávísunina.
Síðastliðinn miðvikudag veitti stjórn Hollvinasamtaka Heilbrigðisstofnunar Vesturlands móttöku höfðinglegum styrk frá Lionsklúbbi Akraness til kaupa á tölvusneiðmyndatæki. Það var Steinunn Sigurðardóttir formaður stjórnar hollvinasamtakanna sem veitti fjögurra milljóna króna ávísun viðtöku úr hendi Jóns Ágústs Þorsteinssonar formanns Lionsklúbbs Akraness. Fram kom í ávarpi Jóns Ágústs að lionsmenn á Akranesi hefðu alla tíð stutt eftir megni við starfsemi Sjúkrahússins á Akranesi og svo Heilbrigðisstofnunar Vesturlands. Áhaldakaupasjóður sjúkrahússins hefði verið stofnaður innan klúbbsins árið 1958 þegar tvö ár voru liðin frá stofnun Lionsklúbbs Akraness. Jón Ágúst sagði að sú fjáröflun sem gerði klúbbnum kleift að afhenda styrki sem þennan væru ljósakrossarnir í kirkjugarðinum á Akranesi á jólaföstunni.
Steinunn Sigurðardóttir formaður Hollvinasamtaka HVE sagði að söfnunin fyrir sneiðmyndatækinu nyti mikils velvilja, en fyrir nokkru var einnig afhent veglegt framlag frá Lionsklúbbnum Eðnu á Akranesi til kaupa á tækinu. Haft hafi verið samband við mörg fyrirtæki á svæðinu þar sem falast hefði verið eftir styrk til kaupa á sneiðmyndatækinu. Hollvinasamtökin voru stofnað í janúar síðastliðnum. Stjórn samtakanna ákvað að forgangverkefni yrði að safna fyrir nýju tölvusneiðmyndatæki. Tækið sem nú er í notkun var reyndar einnig keypt fyrir söfnunarfé. Það var keypt notað, uppgert með nýjum tölvuhluta, og tekið í notkun í ársbyrjun 2007. Gert var ráð fyrir að það myndi vart endast lengur en fimm ár. Þórir Bergmundsson læknir sem viðstaddur var afhendingu styrks lionsmanna sagði að því miður væru vissar tölvusneiðmyndarannsóknir aflagðar þar sem myndgæði og eiginleikar gamla tækisins væru ekki nógu góðir lengur við ákveðnar rannsóknir. Því væri kaup á nýju tæki orðið afar brýnt, en það kostar á bilinu 40-50 milljónir króna.