Krakkarnir á Stuðlum

Krakkarnir á Stuðlum hafa upplifað allskyns áföll á sinni stuttu ævi, brottrekstur úr grunnskólum og mörg með þroskafrávik eins og ofvirkni og fleira. Starfsfólkið vinnur þarna af æðruleysi við mjög erfiðar aðstæður dag hvern og lyftir oft grettistaki í aðstoð við börnin og unglingana sem koma oft í áfengis og eiturlyfjavímu.

VerkefnanefndStjrn_Fjrgynjar
Sólveig Ásgrímsdóttir forstöðumaður Stuðla, Dan Sommer formaður Fjörgynjar ásamt stjórnarmönnum og félögum í Verkefnanefnd Fjörgynjar.

Félagar í Lionsklúbbnum Fjörgyn tóku ákvörðun eftir heimsókn til Stuðla að leggja lið þessu þarfa verkefni og styrkja Stuðla og gáfu á núna aðventunni sófasett, flatskjá og 3 snjóbretti að verðmæti 550.000 krónur.

Með ósk um gæfuríkt komandi ár,

Eggert J Levy, ritari.