Lions á Íslandi auglýsir starf á skrifstofu MedicAlert.

Lions á Íslandi auglýsir starf á skrifstofu MedicAlert.

Starfshlutfall er 50%. Um er að ræða dagvinnustarf, virka daga, sem felur í sér mikil samskipti og fjölbreytt verkefni.

Sækja skal um starfið í gegnum Alfreð með því að smella hér, umsóknarfrestur 18. nóvember 2024.

Starfsmaður þarf að búa yfir frumkvæði og geta unnið sjálfstætt.

MedicAlert sinnir fjölbreyttum hópi fólks sem bera MedicAlert merki.

Helstu verkefni og ábyrgð

Móttaka og skráning umsókna.

Upplýsingagjöf í síma, tölvupósti og heimsóknum frá merkisberum á skrifstofu.

Samskipti við lækna MA.

Áletrun merkja.

Umsjón með heima- og Facebook síðu MA.

Utanumhald innkaupa.

Önnur tilfallandi verkefni.

Afleysing starfsmanns Lions á opnunartíma skrifstofu.

Menntunar- og hæfniskröfur

Stúdentspróf og eða reynsla af ritarastörfum, heilbrigðisritaramenntun er kostur.

Jákvæðni, lipurð í samskiptum.

Frumkvæði.

Góð íslensku- og enskukunnátta

Góð almenn tölvukunnátta.

Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska Nauðsyn
EnskaEnska Nauðsyn
Staðsetning
Hlíðasmári 14, 201 Kópavogur