Ágæti Lionsfélagi
Lionsfélagar í Afríku biðja um okkar hjálp vegna ebólu-faraldurs!
Alþjóðahjálparsjóðurinn mun styðja yfir 4.000 munaðarlaus börn í Vestur Afríku,
sem eru fórnarlömb ebólu-faraldursins (sjá nánar í viðhengi).
Lionsklúbbar eru hvattir til að styðja Alþjóðahjálparsjóð Lions vegna þessa verkefnis.
LCIF hefur áratuga reynslu af neyðaraðstoð víðs vegar um heiminn.
Hver einasta króna sem til LCIF fer 100% til verkefnisins, ekkert í milliliði eða yfirstjórn.
Hægt er að merkja framlög til LCIF sem Ebola Relief eða senda beint af vefsíðu LCIF:
http://lcif.org/EN/ways-to-give/ebola-relief-donation.php
Lionsfélagar, bregðumst skjótt við og styrkjum LCIF Ebola Relief og björgum fórnarlömbum ebólunnar.
Framlög klúbba til þessa verkefnis safnast ekki í Melvin Jones Fellowship.
Með kveðju,
Guðrún Björt
~~~~~~~~~~~~~~~~~~
PID Gudrun Bjort Yngvadottir
+354-896 7097, gudrun@hraunfolk.net
LCIF Coordinator MD-109
Lions Clubs International