Lions býður blóðsykurmælingu til að greina sykursýki

lions_blodmaelingar Alþjóðadagur sykursjúkra er laugardaginn 14. nóvember Lions býður blóðsykurmælingu til að greina sykursýki Félagar í Lionsklúbbum um allt land munu bjóða landsmönnum fría blóðsykurmælingu dagana 12.-14. nóvember í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra sem er á laugardaginn. Markmið blóðsykurmælinga er að greina hugsanlega sykursýki. Á síðasta ári mældu Lionsmenn blóðsykurinn í nær fjögur þúsund manns og var um 50 manns ráðlagt að leita læknis í kjölfarið. - Við viljum með þessu vekja athygli fólks á hættunni af því að ganga með dulda sykursýki. Okkar menn verða á fjölförnum stöðum víða um land og bjóða blóðsykurmælingu. Hún tekur aðeins stutta stund en hún getur gefið vísbendingu um hvort fólk þjáist af sykursýki án þess að gera sér grein fyrir því. Mælist blóðsykurinn sjö eða hærri ráðleggjum við fólki eindregið að leita læknis. Meðferð getur borið því meiri árangur sem sjúkdómurinn greinist fyrr, segir Jón Bjarni Þorsteinsson, heimilislæknir og félagi í Lions. Til eru tvær tegundir sykursýki. Sykursýki af tegund 1 leggst aðallega á ungt fólk sem ekki hefur sterka ættarsögu. Sykursýki af tegund 2 leggst hins vegar einkum á fullorðna sem oft hafa sterka ættarsögu. Helstu einkenni sykursýki af gerð 2 eru þorsti, tíð þvaglát, þreyta, sjóntruflanir og sveppasýkingar og kláði á kynfærum. Þeim sem hafa þessi einkenni er eindregið ráðlagt að hafa samband við lækni. Sykursýki er hættulegur sjúkdómur. Hann er ólæknanlegur en með réttri meðhöndlun er hægt að halda honum í skefjum og forðast fylgikvilla. Mataræði og líkamshreyfing eru hornsteinar meðferðar við sykursýki. Hér má lesa viðtal við Jón Bjarna á visir.is. Nánari upplýsingar: Jón Bjarni Þorsteinsson heimilislæknir í síma 697 5447.