Lionsklúbbarnir í Hveragerði

Lionsklúbbarnir í Hveragerði
stjorn lkl hvg 2015-2016 bLionsklúbbur Hveragerðis hefur nú hafið 45. starfsár sitt 2015-2016 og er þegar búið að halda tvo fundi. Stjórn þessa starfsárs skipa; Vilmundur Kristjánsson formaður, Kristinn G. Kristjánsson ritari og Sigurbjörn Bjarnason gjaldkeri. Svæðisstjóri svæðis 4 er okkar maður, Rögnvaldur Pálmason og Birgir S. Birgisson er siðameistari .   Mánudaginn 26. 10. munu báðir Lionsklúbbarnir í Hveragerði;  Lkl. Hveragerðis og Lkl. Eden halda opinn kynningarfund um starfssemi sína í Skátaheimilinu Breiðumörk 22 í Hveragerði kl. 20.00. Hvetjum við alla sem áhuga hafa á að koma við og kynnast okkur persónulega. Boðið verður upp á kaffi og og eitthvert snarl með.