Lionsklúbbur Akraness færir Höfða SimplyGo ferðasúrefnissíu

Lionsklúbbur Akraness færir Höfða SimplyGo ferðasúrefnissíu
Þann 15. mars var Lionsklúbbur Akraness með félagsfund í Höfðasal og við það tilefni færði klúbburinn Höfða að gjöf SimplyGo ferðasúrefnissíu. Það var Ólafur Eyberg Guðjónsson stjórnarmaður í Líknarsjóði Lkl.Akraness sem afhenti Kjartani Kjartanssyni framkvæmdastjóra Höfða formlega súrefnistækið. Í máli Kjartans við afhendinguna kom fram að ferðasúrefnissían auki mjög lífsgæði íbúa Höfða sem þurfa á súrefnisgjöf að halda. Kjartan þakkaði Lionsmönnum fyrir höfðinglega gjöf og þann hlýhug sem fylgir gjöfinni. Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru á fundinum. IMG_2420 IMG_2421 IMG_2425 IMG_2419