Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Þriðjudaginn 3.apríl s.l. afhenti Lionsklúbbur Akraness, Heilbrigðisstofnun Vesturlands að gjöf, tæki til liðskiptaaðgerða. Nýju tækin koma í stað tækja sem orðin eru allgömul. Liðskiptaaðgerðir eru á sérsviði Heilbrigðisstofnunarinnar á Akranesi. Andvirði nýju tækjanna er u.þ.b. 2.500.000. kr.
Jakob Jónsson formaður Lionsklúbbs Akraness og Guðjón Brjánsson framkvæmdastjóri HVE
Eins og Jakob Jónsson formaður Lionsklúbbs Akraness komst að orði við afhendinguna: Litla ljósið sem fólk tendrar á leiði látinna ástvina sinna á hátíð ljóss og friðar verður því að afli í höndum okkar Lionsmanna til að láta gott af okkur leiða. Áhaldakaupasjóður Lionsklúbbs Akraness hefur starfað frá árinu 1958 og ætíð stutt Sjúkrahúsið á Akranesi, nú Heilbrigðisstofnun Vesturlands með tækjagjöfum.