Verkefnanefnd Lionskl. Öglu ákvað að færa Golfklúbbi Borgarness og Hestamannafélaginu Skugga sitt hvort hjartastuðtækið að gjöf. Peninga til kaupa á tækjunum öfluðum við með Öglublaðinu, sölu á kertum og dagatölum og Guðrúnar frá Lundi kvöldi. Við þökkum öllum sem styrkt hafa okkur í þessum fjáröflunum án ykkar gætum við ekki lagt það lið sem við höfum gert bæði innan og utan héraðs. Einkunnarorð Lions er jú " Við leggjum lið".
![Afhent Golfkl](http://www.lions.is/wp-content/uploads/2015/05/Afhent-Golfkl.jpg)
Á myndinni eru f.v. María Guðmundsdóttir form. verkefnanefndar Lk. Öglu, Ingvi Árnason, Jóhannes Ármannsson, Ingibjörg Hargrave form. Lk. Öglu, Sigrún Elíasdóttir Lk. Öglu.
![Afhent Hestam.fel](http://www.lions.is/wp-content/uploads/2015/05/Afhent-Hestam.fel_.jpg)
Öglukonur afhenda hestamönnum hjartastuðtæki. F.v. María Guðmundsdóttir form. verkefnanefndar Lk. Öglu, Stefán Logi Haraldsson, Kristján Gíslason, Ingibjörg Hargrave form. Lk.. Öglu og Sigrún Elíasdóttir Lionskl. Öglu.