Lionsklúbburinn Fjörgyn tekur inn þrjá nýja og flotta félaga

Föstudaginn 14. des.tók umdæmisstjóri 109A Guðmundur Helgi  þátt í mjög sérstakri athöfn á jólafundi hjá Lionsklúbbnum Fjörgyn. Þrír ungir menn gengu í klúbbinn en þeir eru 20 ára, 22 ára og 31 árs í hópnum var afastrákur og nafni Gísla Jónssonar sem er stofnfélagi í Fjörgyn pabbi Gísla yngri er Gunnlaugur Einarsson sem er líka stofnfélagi. Þarna lækkaði meðalaldur klúbbsins verulega. Innilega til hamingju með þá ákvörðun ykkar Sigurður, Gísli og Eyþór að ganga til liðs við Lionshreyfinguna .
Gleðilegá jólahátíð.
Fjorgyn_Nyjir_felagar
F.v. Gunnlaugur V. Einarsson, meðmælandi,Ragnheiður Árnadóttir, Gísli Sigurður Gunnlaugsson, Sigurður Ingi Þórðarson, Eyþór Guðmundsson og Dan Sommer, meðmælandi