Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Miðvikudagskvöldið 2. október héldu lionsmenn í Lionsklúbbnum Geysi veglegan fund um lestrarerfiðleika og úrræði og aðferðir því tengdar í Aratungu. Fyrirlesarar voru Guðrún Björt Yngvadóttir fyrrum alþjóðastjórnarmaður lionshreyfingarinnar, Sigurlaug Jónsdóttir sérkennari, Elinborg Sigurðardóttir sérkennari og Hrund Harðardóttir skólastjóri. Fundurinn tókst virkilega vel og héldu frummælendur afar greinargóðar framsögur og spunnust góðar umræður í framhaldinu. Þetta er málefni sem snertir marga þætti samfélagsins og því vert að gefa því gaum.
Formaður Lkl. Geysis Örn Erlendsson setur fundinn
Frummælendur frá vinstri Sigurlaug Jónsdóttir sérkennari, Elínborg Sigurðardóttir sérkennari og Hrund Harðardóttir skólastjóri Bláskógaskóla
Frá vinstri Hallgrímur Magnússon læknir og félagi í LKL Geysi. Fundarritari. Gunnar Sverrisson bóndi og félagi í Lkl Geysi. Einn af Frummælendum. Loks Guðrún Björt Yngvadóttir fyrrv. Alþjóðastjórnarmaður lions og félagi í Lkl Eik. Hún flutti einnig framsögu.
Fundarmenn hlustuðu af athygli á fyrirlestrana.
Jón Bjarni Þorsteinsson fv. alþjóðastjórnarmaður og Kristófer A. Tómasson fv. umdæmisstjóri