Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
27. maí 2011 var haldinn lokafundur Lionsklúbbs Húsavíkur. Það hefur verið venja undanfarin ár að halda fundinn annars staðar en í Lionshúsinu og þá gjarnan farið út fyrir bæinn. Að þessu sinni var farið stutt, eða í Heiðarbæ sem er félagsheimili 15 km sunnan við bæinn. Skemmtinefnd undir forystu Sassa sá um að undirbúa fundinn með stjórninni, sjá um skemmtiatrið, dúka og leggja á borð og græja salinn.
Félagar úr Kótelettufélaginu aðeins að taka stöðuna.
Þeir fengu Kótelettufélag Íslands til að sjá um matinn og mættu fjórir kótelettukarlar í slaginn, reyndar eru 3 Lionsfélagar félagar í Kótelettufélagi Íslanda svo það var frekar auðvelt að koma því í kring. Það er skemmst frá því að segja að étnar voru kótelettur sem eldaðar voru að hætti Kótelettufélags Íslands og fórum við öll vel mett heim, glöð og ánægð með framtakið.
Fullur salur, nærri 100% mæting
Birgir Þór formaður setti fund og fór örfáum orðum um vetrarstarfið og sagði frá Færeyjaferð og vinaklúbbasambandi við Lionsclub Suðuroyjar sem staðfest var 7. maí í Hofi á Suðuroy. Síðan færði formaður Sigríði Jónsdóttur hjúkrunarfræðingi smá vinargjöf fyrir hjálpina við sykursýkisverkefni sem við unnum að í vetur. Að þessu loknu sleit Birgir Þór formaður klúbbsins fundi og gaf Sigurði Aðalgeirssyni veislustjóra orðið og þar með hófst gamanið með söng og gleði fram eftir kvöldi, Sigurður Hallmarsson bæjarlistamaður spilaði á harmonikku og sagðar sögur og brandarar.