Markmið Lions
- Að skipuleggja, stofna og hafa eftirlit með starfi þjónustuklúbba sem nefndir eru Lionsklúbbar.
- Að samhæfa verkefni Lionsklúbba og samræma stjórnunarhætti þeirra.
- Að vekja og efla anda skilnings meðal þjóða heims.
- Að efla meginreglur heilbrigðs stjórnarfars og borgaralegra dyggða.
- Að sýna virkan áhuga á velferð samfélagsins í félagsmálum, menningu og almennu siðgæði.
- Að tengja klúbbana böndum vináttu, góðs félagsanda og gagnkvæms skilnings.
- Að skapa vettvang fyrir frjálsar umræður um málefni sem varða almannaheill, en undanskilja þó umræður um stjórnmál og trúarbrögð.
- Að hvetja þjónustuviljugt fólk til að leggja lið í sínu samfélagi, án persónulegs, fjárhagslegs ávinnings og hvetja til dugnaðar og eflingar siðgæðis í viðskiptum, iðnaði, atvinulífi, opinberri þjónustu og einkarekstri.