Nýr kvennaklúbbur í Hafnarfirði

Takið eftir Hafnfirðingar....

Fyrsti undirbúningsfundur að stofnun nýs kvennaklúbbs í Hafnarfirði.

Þann 17. september kom saman glæsilegur hópur kvenna, sem tilbúnar eru að stofna nýjan kvennaklúbb í Hafnarfirði.

Picture_007_l

Næsti fundur verður haldinn í Haukahúsinu mánudagskvöldið 1. október n.k. kl. 19:30 og er ekki nokkur vafi í hugum þessara kvenna að þær nái  fleiri konum með sér svo úr verði fullgildur klúbbur.

Konur ef þið viljið vera með til að móta nýjan klúbb, komið þá strax til liðs við þessa frumkvöðla.

Við hvetjum þær til dáða og munum styðja þær og styrkja á allan hátt sem best við getum.

Kristín Þorfinnsdóttir,
Guðrún Helga Össurardóttir,
Kristófer A. Tómasson og
Birgir S. Birgisson