Nýtt húsnæði fyrir Lionshreyfinguna á Íslandi.

Nýja húsnæðið að Hlíðasmára 14 í Kópavogi.
Nýja húsnæðið að Hlíðasmára 14 í Kópavogi.

Ánægjulegt að segja frá því að húsnæði á fyrstu hæð í þessu húsi er framtíðarhúsnæði Lionshreyfingarinnar. Tilboði okkar var tekið og við samþykktum kauptilboð í Sóltúnið. Það er nú gott að þessi leit er á enda. Okkur lýst mjög vel á, gott húsnæði 194,5 fermetrar með góðu aðgengi, stutt frá stoð braut og svo erum við vel sýnileg í alfaraleið. Smá breytingar þarf að gera, taka niður vegg milli herbergja til að gera sal og svo kannski eitthvað smálegt sem oft fylgir flutningum. Getum jafnvel flutt fyrir áramót. Nánar um það síðar.