Opið hús í Lionsheimilinu milli kl. 12:00 - 13:00

Opið hús í Lionsheimilinu milli kl. 12:00 - 13:00
Föstudaginn 8. maí, milli kl. 12:00 og 13:00, verður Opið hús í Lionsheimilinu í síðasta sinn í vetur. Það þýðir að núna er síðasta tækifærið að mæta. Upplagt að fá sér kaffi/te og kleinur, hitta mann og annan, rabba saman um heima og geima og heilsa upp á Lionsskrifstofuna. Ef þú ert í Reykjavík á þessum tíma þá endilega kíktu við. Það má taka með sér gesti. Boðið er upp á súpu og brauð. Kostar aðeins 500 krónur. Kaffi og kleinur er frítt en alltaf má styrkja verkefnið.  Örfréttir verða á sínum stað :-) Sjá nánar í auglýsingu hér: