Þann 24 febrúar síðastliðinn var sameiginlegur fundur Lkl. Hveragerðis og Lkl. Eden haldinn í matsal Garðyrkjuskólans.
Formanni Lkl. Hveragerðis, Júlíusi Kolbeinsformaður setur fundinn. Það kvöld voru teknir 4 nýjir félagar inn í Lionsklúbb Hveragerðis, þar af voru þrír sem komu úr öðrum Lionsklúbbum.
F.v. Guðmundur Sveinbjörnsson sem var í Lkl. Hornafjarðar, Hilmar Þór Hafsteinsson sem er nýr félagi, Þór Hreinsson sem var í Lkl. Muninn Kópavogi og loks Úlfur Óskarsson sem var í Lkl. Selfoss.
Við þetta tækifæri var einnig hengt í Kristinn G. Kristjánsson enn ein orðan sem Alþjóða-skrifstofa Lions veitti honum fyrir langt og heilladrjúgt starf í þágu hreyfingarinnar. Það er formaður Lkl Hveragerðis Júlíus Kolbeins sem hengir hana í Kristinn.
Lkl. Eden tók við þetta tækifæri inn einn nýjan félaga, Ásrúnu Jóhannsdóttur. Það er formaður kvennaklúbbsins Stella Hrönn Jóhannssdóttir sem á myndinni nælir í hana Lionsmerkið.
F.h. Lionsklúbbs Hveragerðis og Lionsklúbbsins Eden.
Kveðja.
Vilmundur Kristjánsson.