Siðareglur Lionsmanna
- Að líta á starf mitt sem köllun og leysa það svo af hendi að ég ávinni mér traust.
- Að leitast við að ná góðum árangri í starfi mínu og áskilja mér hæfilega umbun erfiðis míns, en reyna ekki að hagnast með óréttmætum hætti.
- Að muna að láta ávinning minn ekki verða á annarra kostnað; að vera trúr meðbræðrum mínum og heiðarlegur gagnvart sjálfum mér.
- Leiki vafi á lagalegu eða siðferðilegu réttmæti gerða minna, að breyta þá við náungan eins og ég vil að hann breyti við mig.
- Að gera vináttu að markmiði, ekki leið að marki. Sönn vinátta krefst einskis í eigin þágu og má aldrei vera háð gagnkvæmum greiða.
- Að hafa ætíð í huga skyldur mínar sem þjóðfélagsþegn og að vera hollur þegn þjóðar og byggðarlags bæði í orði og verki.
- Að hjálpa meðbræðrum mínum í vanda. Þeir sem um sárt eiga að binda þurfa hluttekningu, bágstaddir og minnimáttar stuðning.
- Að vera gætinn í gagnrýni og örlátur á hrós. Að byggja upp, en rífa ekki niður.