Stækka sólpallinn

Lkl_V_Solpallur_DSC0005_lSambýlið í Vestmannaeyjum á góða vini þar sem Lions félagar eru. Þeir mæta fyrir hver jól og koma með jólagjafir meðferðist. Gjafirnar miðast við að það nýtist Sambýlinu og íbúum þess s.s. með tækjum í eldhús og þ.h. Lkl_V_Solpallur_DSC0007_lSólpallur er við húsið, en ákveðið var að stækka pallinn og að sjálfsögðu tóku Lions menn það verk að sér. Þessar myndir voru teknar sl. laugardag er nokkrir vaskir félagar mættu og létu sitt ekki eftir liggja.

Lkl_V_Solpallur_DSC0022_l
Ágúst P. Óskarsson stallara, Frosta Gíslason, Ingimar H. Georgsson formann, Gunnar Andersen og Arnar Andersen