Styrkir einstaklinga í heimabyggð

Á dögunum styrkti Lionsklúbburinn Björk tvo einstaklinga um hundrað þúsund krónur hvort, en þau voru Brynja Árnadóttir og Magnús Jóhannesson. 

Stefanía Ósk Stefánsdóttir, Brynja Árnadóttir og Ragnheiður Guttormsdóttir formaður Lions klúbbsins Bjarkar.

Klúbburinn leggur áherslu á styrkja einstaklinga og stofnanir í heimabyggð. Auk þess sem hann styrkir ýmis önnur verkefni, bæði hér á landi og erlendis.

Að sögn Stefaníu Ósk Stefánsdóttur ritara klúbbsins er sala á plastpokum helsta fjáröflun hans og fer hún jafnan fram á haustin.

Sjá nánar í Feyki  >>>>