Styrktu íbúa Suðureyjar um rúmar tvær milljónir

LionsIsoLionsklúbbur Ísafjarðar hefur sent til Færeyja veglegan styrk vegna óveðurs sem reið yfir Suðurey seint á síðasta ári. „Öllum er kunnugt hvernig Færeyingar hafa staðið með Íslendingum bæði í deilum við stórþjóðir og ekki síður þegar áföll hafa dunið yfir á Íslandi. Nægir þar að minna á landhelgisdeiluna við Breta, hrunið árið 2008, eldgosið í Vestmannaeyjum og síðast en ekki síst snjóflóðin í Súðavík og á Flateyri. Framlög þeirra vegna þeirra áfalla voru svo rausnarleg að vart eru finnanleg álíka fordæmi þegar jafn lítil þjóð á í hlut,“ segir í tilkynningu frá Lionsmönnum.

Lionsklúbbur Ísafjarðar ákvað því að beita sér fyrir söfnun fyrir það fólk sem missti heimili sitt í óveðrinu, en það voru eldri borgarar sem bjuggu í bænum Tvöroyri á Suðurey.

Í tilkynningunni segir að klúbburinn hafi ákveðið að standa myndarlega að þessu og veita eina miljón til þessa verkefnis. Bæjarstjórn Ísafja! rðarbæjar ákvað að styrkja söfnunina með hálfrar miljónar króna framlagi og eftirtaldir Lionsklúbbar hafa sameinast um 584.000 króna framlag: Lkl. Djúpavogs, Lkl. Björk, Sauðárkróki, Lkl. Álftaness, Lkl. Harpa, Stykkishólmi, Lkl. Suðri, Vík, Lkl. Ösp, Akureyri, Lkl. Grindavíkur, Lkl. Hólmavíkur, Lkl. Reykjavíkur, Lkl. Úa, Mosfellsbæ, Lkl. Skagastrandar, Hjálparsjóður Lions.
Lionsklúbbur Ísafjarðar kann öllum þessum aðilum bestu þakkir fyrir stuðninginn við málið, sem gerði kleift að tvöfalda framlagið. „Þessir fjármunir hafa nú verið sendir til Lionsklúbbsins á Suðurey í Færeyjum sem mun annast framhald málsins. Bæjaryfirvöld á Tvöroyri og Vågur á Suðurey hafa lagt til fjármunirnir verði lagðir í kaup á bifreið sem verði nýtt í þágu eldri borgara á Suðurey, sem við trúum og treystum að muni bæta lífsgæði þessa fólks í framtíðinni.“
Lionsklúbbur Ísafjarðar hefur á fimmtíu og fimm ára ferli beitt sér fyrir fjölmörgum samfélagslegum verkefnu! m. Mest áhersla hefur verið lögð á líknar- og menningarmál í okkar sam félagi en auk þess hefur klúbburinn tekið þátt í alþjóðlegum verkefnum eins og baráttu gegn blindu. Vill klúbburinn þakka þá velvild sem hann hefur alltaf notið í sínu starfi.
Sjá Bæjarins Bestu á Ísafirði >>>>>>