Sviðamessa Lionsklúbbsins á Blönduósi

Herrakvöld Lionsklúbbs Blönduóss verður haldið föstudagskvöldið 11.11.11 í Félagsheimilinu á Blönduósi. Húsið opnar kl. 19:30. Veislustjórar eru þeir Jón Hallur Ingólfsson og Gunnar Rögnvaldsson en ræðumaður kvöldsins verður Stefán Vilhjálmsson.

Aðgangseyrir er kr. 4.000,-. Áhugasamir karlar hvattir til að skrá sig í síma 860-0054 (Sigurjón), 848-0037 (Auðunn) og 844-5288 (Kári).