Ungmenni spila saman Umsóknarfrestur til 1. mars

Þekkir þú ungmenni, sem er framarlega í sígildri tónlist, sem gæti hugsað sér að taka þátt í að mynda hljómsveitina Orkester Norden næsta sumar.

orkesternorden2011

Næst verður safnast saman 1 - 12 ágúst 2012 í Kristjánssandi Noregi.

Umsóknarfrestur rennur út 1. mars og sækja tónlistarmenn um hjá tónlistarskólum sem meta hvort nemendur eru komnir nógu langt.

Orkester Norden 2012 er með mjög fjölbreytta efnisskrá, svo sem sinfóníutónleika, kammermúsík, einkatíma og hópvinnu.  Allt fer fram í hinum mörgu sölum Leikhús Kristjánssands og í tónlistarhúsinu Kilden.

ON_plakat