Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
- Lionsþing 2025
Ólafsvík verður miðstöð þinghaldsins og mun mannlíf bæjarins og næsta nágrennis að mestu leiti snúast um það. Fundarhald verður í Íþróttahúsi Snæfellsbæjar og safnaðarheimili Ólafsvíkurkirkju, skólar verða í grunnskóla Snæfellsbæjar í Ólafsvík. Allar þessar byggingar eru á sömu torfunni svo að ekki tekur nema 2-3 mínútur að ganga á milli húsa.
Kynningarkvöldið verður með hefðbundnu sniði að hætti Snæfellinga, á þinginu sem Ólsarar héldu 2007 var kynningarkvöldið í aflagðri fiskverkun á hafnarsvæðinu. Að þessu sinni höfum við ákveðið að flytja okkur til og höfum við fengið sal sem er einnig á hafnarsvæðinu en býður ekki síður upp á möguleika til að skemmta fólki. Gert er ráð fyrir lifandi tónlistarflutningi og ljúffengum veitingum sem bera þess merki að Ólafsvík er útgerðarbær.
Farið verður með maka í skoðunarferð laugardaginn 26. apríl um Snæfellsbæ en þar er margt að sjá og upplifa. Við gerum ráð fyrir að ferðin verði óvissuferð og því verður ekki gefið upp hvert verður farið, hvar verður áð eða hvað verður til skemmtunar í ferðinni. Makar þingfulltrúa eru velkomnir í ferðina, frítt er í ferðina fyrir þá.
Lokahófið verður haldið í Klifi, félagsheimilið Klif er eitt glæsilegasta félagsheimili landsins. Boðið verður upp á glæsilegan hátíðarkvöldverð og dansleik.
Í Ólafsvík eru fjögur hótel og gistiheimili: North star hótel, Við hafið, Welcome apartments og Bikers Paradise. Á Hellissandi og Rifi sem eru í um 7 mínútna akstursfjarlægð eru 2 til viðbótar, The Freezer hostel og Hótel Hellissandur. Samtals bjóða þessir staðir upp á gistingu fyrir um 230 manns. Í Staðarsveit og Breiðuvík sem eru rétt hinum megin við Fróðárheiði eru 9 hótel og gistiheimili sem bjóða upp á gistingu fyrir um 535 manns, má þar m.a. nefna Hótel Búðir, Hótel Hellnar, Kast guesthouse og Langaholt. í Grundarfirði sem er í 20 mínútna fjarlægð er hótel og fjöldi gistiheimila.
Til viðbótar við hótel og gistiheimili er mikið framboð af heimagistingu og svo er frábær aðstaða bæði á Hellissandi og í Ólafsvík fyrir tjöld, vagna og hjólhýsi.
Snæfellsnes hefur upp á margt að bjóða, afþreyingu og skoðun hverskonar. Ber þar fyrst að nefna Snæfellsjökul, kórónu Snæfellsness, svo fagran að annað þótti ótækt en að stofna um hann þjóðgarð. Þjóðgarðurinn var stofnaður 28. júní 2001 og þykir hann um margt merkilegur vegna sérstöðu svæðisins í jarðfræði og landmótun. En áhugaverðir staðir innan hans auk Snæfellsjökuls eru td. Arnarstapi, Djúpalónssandur, Dritvík, Gufuskálar, Lóndrangar, Saxhóll og Þúfubjarg. Miklir möguleikar eru til útivistar á svæðinu.
Ýmis söfn og sýningar eru í Snæfellsbæ svo sem Pakkhúsið í Ólafsvík, Gestastofa Þjóðgarðsins á Malarrifi, Sjóminjasafnið og Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi og að sjálfsögðu Frystiklefinn á Rifi en hann er atvinnuleikhús og suðupottur alls kyns snilldarverka og tónleikahalds í bland við annað viðburðahald. Kirkjur Snæfellsbæjar eru sex talsins, á Staðarstað, Búðum, Hellnum, Brimilsvöllum, Ingjaldshóli og Ólafsvík. Ólafsvíkurkirkja er nokkuð sérstök í útliti en úr lofti er hún í laginu eins og flattur fiskur, Ingjaldshólskirkja er talin elsta óbreytta steinsteypta kirkja í heimi og er friðlýst. Gaman er að skoða hana ásamt þeim fjölmörgu áhugaverðu gripum sem eru í eigu hennar.
Ýmsu er hægt að kynnast á Snæfellsnesi. Hér er einna styðst í hvalaskoðun á landinu en boðið er upp á slíkar ferðir frá Ólafsvík. Einnig er hægt að fara í ógleymanlegar siglingar um innanverðan Breiðafjörð þar sem
fjölbreytt náttúra eyjanna og fuglalíf eru skoðað, en við Breiðafjörð eru hafernir flestir á Íslandi. Víða við ströndina má sjá seli flatmaga í fjörunni og fuglalíf er fjölbreytt.
Möguleikar til útivistar eru miklir á Snæfellsnesi, ber þar fyrst að nefna ferðir á Snæfellsjökul, gönguleiðir innan þjóðgarðsins og utan eru fjölmargar og af öllum gerðum þannig að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Rauðfelldargjá í Breiðuvík er eitthvað sem allir þurfa að skoða og eins er það mikil upplifun að heimsækja Vatnshelli. Þá eru möguleikar á stangveiði miklir á Nesinu þar sem sumar af bestu ám og vötnum landsins eru staðsett.
Fjórir 9 holu golfvellir eru á Snæfellsnesi, í Ólafsvík, í Grundarfirði, í Stykkishólmi og í Staðarsveit.
Sundlaug er í Ólafsvík og er stutt síðan hún var mikið endurbætt. Einnig er nýendurnýjuð útilaug á Lýsuhóli en hún er heilsulaug. Hestaleigur eru víða í Snæfellsbæ. Sjóminjasafn er að finna á Hellissandi, safnið er í uppbyggðri þurrabúð þannig að þar sést vel hvernig sjómennirnir bjuggu. Ýmis önnur söfn er að finna í sveitarfélaginu.
Allir fullgildir Lionsfélagar, þótt þeir séu ekki kjörnir þingfulltrúar, eiga rétt á setu á umdæmis- og fjölumdæmisþingi sem áheyrnarfulltrúar.
Við bjóðum því alla Lionsfélaga velkomna á þingið, Lionshátíðina og einstaka viðburði.
Frekari kynningu á Snæfellsbæ er að finna á þessari slóð: https://snaefellsbaer.is
Einnig er hægt að skanna QR kóðann til að komast á síðuna
Sjáumst heil í Ólafsvík dagana 25. - 27. apríl 2025
Lionsklúbbur Ólafsvíkur og Lionsklúbburinn Rán