Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Myndi frá Lionsþingi á Sauðárkróki.
Lionsklúbbarnir fjórir í Skagafirði, Lkl Sauðárkróks, Lkl Björk, Lkl Höfði og Lkl Skagafjarðar standa fyrir þinginu.
Hér sendum við ykkur dagskrá þingsins og upplýsingar um þingstað og þingstörfin, einnig eyðublað fyrir skráningu á þingið og kjörbréf fyrir væntanlega þingfulltrúa. Það er afar mikilvægt að eyðublöð þessi séu vandlega útfyllt því þau liggja til grundvallar öllu skipulagi þingsins. Einungis er tekið við skráningu á viðkomandi skráningarblaði.
Þinggjald ....... kr. 10.000,-
Hádegisverður .. kr. 2.500,-
Kaffi/te og meðlæti eftir hádegi kr. 1.000,-
Kynningarkvöld kr. 2.500,-
Lionshátíð kr. 10.000,-
Þinggjald með morgunkaffi hefur verið ákveðið kr. 10.000,- fyrir hvern fulltrúa, skal greiða með innleggi á bankareikning nr. 0161-26-6012 kt. 601289-2619.
Greiðsla skal hafa borist í síðasta lagi 15. mars n.k.
Önnur gjöld, svo sem fyrir hádegisverð, síðdegiskaffi, kynningarkvöld og Lionshátíð er boðið upp á að greiða fyrirfram, veittur verður afsláttur kr. 2.500 ef greitt er í síðasta lagi 25.04.2014 og þá verður heildarverðið kr. 17.000.- sem greiðist inn á reikning 0161-26-6012 kt. 601289-2619. Setja skal kennitölu greiðanda í tilvísun, annars verða innheimt hjá fulltrúum við afhendingu þinggagna.
Athugið að þingfulltrúar fá ekki afhent þinggögn séu þinggjöld ógreidd.
Nauðsynlegt er að meðfylgjandi skráningareyðublað sé rétt útfyllt og gefi sem gleggstar upplýsingar um óskir viðkomandi þingfulltrúa. Aðeins skal skrá einn þingfulltrúa á hvert eyðublað. Senda má skráningareyðublöðin í pósti til skráningarfulltrúa þingsins, en heimilisfang hans er neðst á skráningareyðublaðinu. Einnig verður hægt að nálgast skráningareyðublöð á vefsíðu Lions, www.lions.is og senda skráninguna ásamt kjörbréfi rafrænt á netfangið, hafragil@gmail.com eða ae@skv.is Einnig má senda þau á faxi, 453-6470 eða í pósti á Lionsklúbbinn Björk Víðihlíð 10, 550 Sauðárkróki.fyrir 15. mars n.k.
Athugið að allar breytingar sem verða á skráningu þarf að tilkynna í tölvupósti á sama netfang.
Samkvæmt 34. grein laga Lionsumdæmis 109 skal klúbbstjórn fylla út meðfylgjandi kjörbréf og skila með skráningu þingfulltrúa, í síðasta lagi 5. apríl n.k. Í greininni segir:
Sérhver klúbbur, fullgildur og skuldlaus við Alþjóðasambandið og fjölumdæmi 109, er skyldur að senda að minnsta kosti einn fulltrúa á umdæmis- og fjölumdæmisþing og tilnefna jafnmarga til vara.
Hefur hver klúbbur eitt atkvæði fyrir hverja tíu félaga, eða meirihluta þess fjölda eins og félagatalan er skráð í skjölum alþjóðasambandsins á fyrsta degi síðasta mánaðar á undan þeim mánuði sem þing eru haldi.
Meirihluti sá sem hér er getið að framan telst fimm félagar eða fleiri. Sérhver fullgildur lionsfélagi, þótt eigi sé hann kjörinn fulltrúi, á rétt á setu á umdæmis- og fjölumdæmisþingi sem áheyrnarfulltrúi.
Kjörbréf og skráningu skal senda rafrænt á netfangið: hafragil@gmail.com eða ae@skv.is fyrir 15. mars 2014
Þinggögn verða afhent til fulltrúa í Bóknámshúsi Fjölbrautaskóla Nv. miðvikudagskvöldið 28. maí kl. 20:00 22:00 og fimmtudags og föstudagsmorgun 29. og 30. maí frá kl. 08:00 í Bóknámshúsi Fjölbrautaskóla nv. Við hvetjum þá þingfulltrúa sem geta komið því við að sækja þinggögn sín á miðvikudagskvöldinu að gera svo.
Við vekjum athygli á að þátttakendur í ritaraskólanum þurfa að hafa meðferðis fartölvu með þráðlausum netaðgangi. Í Bóknámshúsinu er þráðlaust net sem ritaraskólinn mun hafa aðgang að einnig verður aðgangur að tölvuveri skólans.
Rétt er að ítreka að séu klúbbar í skuld við Alþjóðasambandið, fjölumdæmið eða að þinggjöld hafi ekki verið greidd, fá fulltrúar þeirra ekki afhent þinggögn.
Þinghaldið verður í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Lokahóf þingsins verður í Íþróttahúsinu og kynningarkvöldið verður í Reiðhöllinni Svaðastöðum.
Væntanlegir þinggestir verða sjálfir að panta gistingu og taka fram að það sé vegna Lionsþings. Þinghaldarar hafa samið við eftirtalda gististaði um hagstætt verð. Tilboðin gilda til 15. apríl og því er nauðsynlegt að klúbbarnir bóki gistingu sem fyrst.
Gisting verður meðal annar í boði á (Sjá frekar hér að neðan)
Við leggjum ríka áherslu á að klúbbar skili skráningarblöðum og kjörbréfum fyrir 15. mars og greiði þinggjöldin sín fyrir 15. mars.
Einnig viljum við minna á fartölvu með nettengingu fyrir ritaraskólann og stóru klúbbfánana sem gera gönguna til þingsetningar að alvöru skrúðgöngu.
Vinsamlega hafið samband við einhvern neðangreindra þingnefndarmanna ef óskað er frekari upplýsinga.
Með Lionskveðju,
Ásgrímur Sigurbjörnsson, form. Lkl Sauðárkróks | 893-1738 | asgrimur@ils.is |
Margret Guðmundsdóttir, Lkl Björk | 844-5619 | hafragil@gmail.com |
Sigurður Sigfússon, Lkl Skagafjarðar | 891-9148 | sigurvik@fjolnet.is |
Árni Egilsson,Lkl Höfða | 894-7487 | ae@skv.is |
Jón Sigurðsson, Lkl Sauðárkróks | 892-1319 | jonsig@krokur.is |
Eiríkur Loftsson, Lkl Sauðárkróks | 899-6422 | el@rml.is |
Gunnar Valgarðsson, Lkl Sauðárkróks | 848-0285 | gunnar.valgardsson@ks.is |
Með Lionskveðju,
Sauðárkróki 24. 01. 2014,
Sjá meira um gistingu:
Gisting í tengslum við Lionsþing á Sauðárkróki, 29. 30. maí. 2013.
Munið að tilgreina sérstaklega hvaða hótel er pantað og hvernig herbergi.
Takið einnig fram að gistingin sé vegna Lionsþingsins.
10% afsláttur er gefinn ef gist er 2 nætur eða fleiri.
Hafið í huga að skólar hefjast FIMMTUDAGINN 29. maí kl. 09:00
Lokahófið fer fram FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 30. maí.
Morgunverður er innifalinn í öllum verðum.
Hótel Mikligarður s.453-6330 (http://www.mikligardur.is ) netfang mikligardur@mikligardur.is
Hótel Tindastóll s. 453-5002 (http://www.hoteltindastoll.com) netfang tindastoll@mikligardur.is
Gistiheimilið Mikligarður s. 453-6880 (http://www.mikligardur.is ) netfang mikligardur@mikligardur.is
Hótel Varmahlíð s. 453-8170 (http://www.hotelvarmahlid.is) netfang info@hotelvarmahlid.is
Bakkaflöt ferðaþjónusta s. 453-8245 (http://www.bakkaflot.is ) netfang bakkaflot@islandia.is