Ekki missa af neinu hjá Lions og skráðu netfangið þitt á póstlistann.
Fylgdu okkur á facebook
- Styrkja LCIF
- Um Lions
- Klúbbar
- Verkefni
- Minningar
- Lionsbúðin
- Fræðsla
- Lionssalurinn
Lions leggur lið
Kjörorð Lions er: ,,Við leggjum lið (We Serve). Lionsfélagar láta gott af sér leiða á sviði mannúðar- og menningarmála. Lionsklúbbar eru skipaðir athafnasömu og félagssinnuðu fólki og er góður vettvangur fyrir fólk sem vill vinna að velferðarmálum.
Alþjóðleg Lionsverkefni
LCIF - Alþjóðahjálparsjóður Lions er hinn opinberi líknarsjóður allra Lionsklúbba. LCIF hefur veitt 700 milljónir dollara í 100.000 styrki til að bæta líf fólks um allan heim.
Árlega veitir LCIF styrki fyrir um 30 milljónir Bandaríkjadala. En auk þess sinna allir Lionsklúbbar margs konar öðrum verkefnum á svið líknar- og menningarmála.
Ákveðin verkefni eru skilgreind á verksviði Lions: Samfélagsverkefni, Menningarverkefni, Umhverfismál, Heilbrigðis- og velferðarmál og Lions með börnum og ungmenum.
Lionsklúbbar sinna gjarnan sinni heimabyggð, síðan landsverkefnum og einnig alþjóðlegum verkefnum.
Alþjóðleg verkefni sem Lions á Íslandi tekur virkan þátt í eru m.a. Unglingaskipti, Lions Quest, Friðarveggspjaldakeppni ungmenna, Ljósmyndasamkeppni i náttúrumyndum o.fl.
Alþjóðleg verkefni Lions á Norðurlöndum
Lions í Svíþjóð styrkir m.a. verkefni fyrir börn og unglinga í austur Evrópu; sjónvernd m.a. með gleraugnasöfnun. Sænski neyðarsjóðurinn bregst rausnarlega við náttúrhamförum.
Lions í Noregi styrkir mörg verkefni erlendis, m.a. augnspítala í Úganda, Zambíu og Malawi; vatnsbrunna í Úganda; skóla í Kenya, Úganda, Indlandi og Chile og m.fl.
Lions í Danmörku styrkir verkefni m.a. í Bólivíu, Líberíu, Litháen og Sierra Leone.
Lions í Finnlandi styrkir m.a börn á Sri Lanka, ungmenni í Eystrasaltslöndunum, barnaheimili, skóla, sjúkrahús, elliheimili og fjölskyldur í rússnesku Kirjálahéruðunum.
Lions á Íslandi hefur einkum stutt samnorræn verkefni, en heimili fyrir munaðarlaus og fötuð börn í Friazino í Rússlandi var okkar framlag 1990 og höfum við stutt það síðan.
Netsamfélagið Lions
Lions Clubs International urðu alþjóðleg samtök löngu fyrir daga Internetsins. Í dag er auðveldara en nokkru sinni fyrr að vera alþjóðlegur og tengjast Lions hvar sem er í heiminum hvenær sem er.
Á vefsíðu LCI Alþjóðasamtaka Lions http://www.lionsclubs.org er ný vefsíða Online Community til að auðvelda Lions að komast í samband við aðra félaga og klúbba, að deila sögum, myndum og góðum hugmyndum með öðrum.
Kíktu á blog-síðu Lions: http://lionsclubsorg.wordpress.com/ og lestu fréttir sem starfsfólk LCI og alþjóðaforseti Lions skrifar.
Sjáðu ný myndskeið frá Lions á YouTube: http://www.youtube.com/user/lionsclubsorg
Lestu fréttir frá höfuðstöðvum Lions á Twitter og frá Lionsklúbbum víðs vegar um heiminn http://twitter.com/lionsclubsorg.
Þér líkar vel við okkur á Facebook vinsælasta samskiptavef í heimi: http://www.facebook.com/lionsclubs
Eignastu tengslanet Lionsfélaga og reyndra sérfræðinga á mörgum sviðum á Linkedin: http://www.linkedin.com/
Sjáðu myndir af Lions um allan heim á Flickr - vinsælustu myndasíðu á netinu: http://www.flickr.com/photos/lionsclubsorg/
Vertu vinur Lions Clubs International á MySpace og tengstu öðrum Lionsfélögum og Lionsklúbbum: http://www.myspace.com/lionsclubsorge-Clubhouse
Skoðaðu vefsíður Lionsklúbba á e-Clubhouse:
http://www.e-clubhouse.org/eclubhouses.php