Bjórhátíð Ásbjarnar - herrakvöld

Bjórhátíð Ásbjarnar - herrakvöld

35. bjórhátíð Lionsklúbbsins Ásbjarnar verður haldin í Kaplakrika, Hafnarfirði, föstudaginn 7. mars.

Borðhald hefst kl.20:00. Húsið opnað kl.19:00. Tekið verður á móti gestum með lúðrablæstri.

Veislustjóri: Örn Árnason. Fram koma: Jakob Birgisson uppistandari og Færeyski-Íslenski dúettinn Kristina og Böddi.

Miðaverð kr.12.000. Innifalið frábært fiskréttahlaðborð Madda kokks. Kjötréttur verður einnig á boðstólum.

Happdrættismiðar verða seldir á staðnum. Glæsilegir vinningar.

Uppboð á málverkum eftir Tolla, Ladda, Rebekku, Pétur Gaut, Bjarna Þór ofl.

Allur ágóði rennur til Píetasamtakanna, Sorgarsamtakanna, Krísuvíkursamtakanna ofl.

Miðapantanir: Sævar Hjaltason sími: 864-3410, netfang: mjolk@simnet.is