Bökuðu flatkökur fyrir mæðrastyrksnefnd

Dagskrin

Konurnar í Lionsklúbbnum Eden í Hveragerði stóðu sig vel fyrir jól því þær bökuðu fullt af flatkökum fyrir Mæðrastyrksnefnd og gáfu. Almar bakari gaf allt hráefni í flatkökurnar og komu þær sér ákaflega vel fyrir skjólstæðinga nefndarinnar yfir hátíðarnar. 10 konur eru virkar í klúbbnum og höfðu þær virkilega gaman af verkefninu eins og sjá má á myndinni við flatkökubaksturinn.

Frétttin er tekin af dagskránni á Suðurlandi sjá meira >>>>>

MHH