Dagur Hvíta stafsins laugardaginn 15. október

Í tilefni af degi HVÍTA STAFSINS, laugardaginn 15. október næstkomandi, verður opið hús í Hamrahlíð 17, í Húsi Blindrafélagsins. Húsið verður opið almenningi milli kl. 14:00 og 16:00. Meðal viðburða er að forseti Íslands mun afhenda Samfélagslampa Blindrafélagsins, sem nú verður afhentur í þriðja sinn. Í þetta sinn er lampinn veitur Lions á Íslandi fyrir öflugan stuðning við leiðsöguhunda- og talgervlaverkefni Blindrafélagsins.

Gestum mun gefast kostur á að kynnast þeirri fjölbreyttu starfsemi sem fram fer í húsinu. Má þar nefna: Hjálpartækjaverslun Blindrafélagsins, starfsemi Blindravinnustofunnar, starfsemi Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, endurhæfingaríbúð fyrir blinda og sjónskerta, starfsemi sprotafyrirtækisins Oxymap, starfsemi Augnlækna Reykjavíkur, starfsemi Nuddstofu Óla og starfsemi sjóntækjafræðinganna í Optic Reykjavík. Einnig verða til sýnis og skemmtunar leiðsöguhundar fyrir blinda, hvolpar sem hafa verið valdir til að verða leiðsöguhundar og leitarhundar frá lögreglunni og hjálparsveitunum.

Boðið verður upp á kaffiveitingar og eru allir velkomnir á meðan að húsrúm leyfir.