ENN FJÖLGAR Í HVERAGERÐI

Á fundi þann 23.01 tók Lionsklúbbur Hveragerðis inn 4 nýja félaga, þá Finn Jóhannsson, Jón Þröst Ólafsson, Rögnvald Pálmason og Ásgeir Karlsson.

Heiðursgestir voru félagar úr Lionsdeildinni Eden, Kristín Þorfinnsdóttir umdæmistjóri, Birgir Árdal svæðistjóri og Magnús Þór Sigmundsson sem lék og söng fyrir fundargesti.

Fundurinn var haldinn á Hoflandsetrinu og þótti vel heppnaður en þessi fundur var hluti af miklu fjölgunarátaki sem staðið hefur yfir í klúbbnum undanfarin 2-3 ár.