Fjórir nýjir félagar í Lionsklúbbnum Skyggni

Fjórir nýjir félagar í Lionsklúbbnum Skyggni
Á fundi í Lionsklúbbnum Skyggni þann 20. nóvember voru teknir inn í klúbbinn fjórir nýir félagar en það verður að teljast mikil hlutfallsleg fjölgun þar sem heildarfjöldinn í Skyggni var 12 fyrir fundinn. Tveir af þessum nýju félögum eru búsettir á Hvolsvelli, þeir Ólafur Örn Oddsson, 39 ára, og Tryggvi Lindal, 39 ára. Einn er búsettur á Hellu, Gunnar Aron Ólason, 39 ára, og einn á Laugalandi í Holtum, Guðni Sighvatsson, 34 ára. Á meðfylgjandi mynd má sjá nýja meðlimi ásamt meðmælendum þeirra. Á myndinni eru talið frá vinstri til hægri, Óli Már Aronsson, Tryggvi Lindal, Haraldur Birgir Haraldsson, Gunnar Aron Ólason, Guðni Sighvatsson, Óskar Kristinsson, Ólafur Örn Oddsson og Svavar Bjarnhéðinsson. Gunnar Aron Ólason, blaðafulltrúi